Fara beint í efnið

Ísland.is appið

Með ríkið í vasanum

19. október 2012

Þessi frétt er meira en árs gömul

Fyrirmyndarakstur á Reykjanesbraut í Hafnarfirði

Ökumenn voru almennt til fyrirmyndar þegar lögreglan var við hraðamælingar á Reykjanesbraut í Hafnarfirði í dag. Fylgst var með ökutækjum sem var ekið Reykjanesbraut í norðurátt, við Straum. Á einni klukkustund, eftir hádegi, fóru 326 ökutæki þessa akstursleið og var þeim öllum nema fimm ekið á löglegum hraða, en þarna er 90 km hámarkshraði. Meðalhraði hinna brotlegu var 100 km/klst, en sá sem hraðast ók mældist á 104.

Vöktun lögreglunnar á Reykjanesbraut er liður í umferðareftirliti hennar á höfuðborgarsvæðinu.