Fara beint í efnið

Ísland.is appið

Með ríkið í vasanum

1. nóvember 2024

Þessi frétt er meira en árs gömul

Fyrirmyndarakstur á Norðurströnd á Seltjarnarnesi

Næstum allir ökumenn voru til fyrirmyndar þegar lögreglan var við hraðamælingar á Norðurströnd á Seltjarnarnesi í dag. Fylgst var með ökutækjum sem var ekið Norðurströnd í vesturátt, við Suðurströnd. Á einni klukkustund, um hádegisbil, fóru 143 ökutæki þessa akstursleið og var þeim öllum nema einu ekið á löglegum hraða. Hinn brotlegi mældist á 59 en þarna er 50 km hámarkshraði.

Vöktun lögreglunnar á Norðurströnd er liður í umferðareftirliti hennar á höfuðborgarsvæðinu, en þess má geta að skýjað og blautt var á meðan hraðamælingunni stóð.