Fara beint í efnið

Ísland.is appið

Með ríkið í vasanum

4. júlí 2016

Þessi frétt er meira en árs gömul

Fyrirmyndarakstur á Norðurströnd á Seltjarnarnesi

Nær allir ökumenn voru til fyrirmyndar þegar lögreglan var við hraðamælingar á Norðurströnd á Seltjarnarnesi í dag. Fylgst var með ökutækjum sem var ekið Norðurströnd í austurátt, að Látraströnd. Á einni klukkustund, fyrir hádegi, fóru 111 ökutæki þessa akstursleið og var þeim öllum nema þremur ekið á löglegum hraða. Hinir brotlegu mældust á 70 (2) og 76 en þarna er 60 km hámarkshraði.

Vöktun lögreglunnar á Norðurströnd er liður í umferðareftirliti hennar á höfuðborgarsvæðinu.