Fara beint í efnið

Ísland.is appið

Með ríkið í vasanum

10. júní 2014

Þessi frétt er meira en árs gömul

Fyrirmyndarakstur á Norðurströnd á Seltjarnarnesi

Langflestir ökumenn voru til fyrirmyndar þegar lögreglan var við hraðamælingar á Norðurströnd á Seltjarnarnesi í dag. Fylgst var með ökutækjum sem var ekið Norðurströnd í austurátt, við Fornuströnd. Á einni klukkustund, eftir hádegi, fóru 108 ökutæki þessa akstursleið og var þeim öllum nema fjórum ekið á löglegum hraða. Meðalhraði hinna brotlegu var 72 km/klst en þarna er 60 km hámarkshraði.

Vöktun lögreglunnar á Norðurströnd er liður í umferðareftirliti hennar á höfuðborgarsvæðinu.