31. maí 2017
31. maí 2017
Þessi frétt er meira en árs gömul
Fyrirmyndarakstur á Hjarðarhaga í Reykjavík
Nær allir ökumenn voru til fyrirmyndar þegar lögreglan var við hraðamælingar á Hjarðarhaga í Reykjavík í gær. Fylgst var með ökutækjum sem var ekið Hjarðarhaga í austurátt, á móts við Hjarðarhaga 31. Á einni klukkustund, eftir hádegi, fóru 25 ökutæki þessa akstursleið og var þeim öllum nema tveimur ekið á löglegum hraða, en þarna er 30 km hámarkshraði. Hinir brotlegu mældust báðir á 42.
Vöktun lögreglunnar á Hjarðarhaga er liður í umferðareftirliti hennar á höfuðborgarsvæðinu.