27. október 2016
27. október 2016
Þessi frétt er meira en árs gömul
Fyrirmyndarakstur á Fiskislóð í Reykjavík
Nær allir ökumenn voru til fyrirmyndar þegar lögreglan var við hraðamælingar á Fiskislóð í Reykjavík í gær. Fylgst var með ökutækjum sem var ekið Fiskislóð í suðurátt, að Grunnslóð. Á einni klukkustund, eftir hádegi, fóru 172 ökutæki þessa akstursleið og var þeim öllum nema einu ekið á löglegum hraða. Hinn brotlegi mældist á 64 km/klst en þarna er 50 km hámarkshraði.
Vöktun lögreglunnar á Fiskislóð er liður í umferðareftirliti hennar á höfuðborgarsvæðinu.