Fara beint í efnið

Ísland.is appið

Með ríkið í vasanum

17. ágúst 2015

Þessi frétt er meira en árs gömul

Fyrirmyndarakstur á Eggertsgötu í Reykjavík

Nær allir ökumenn voru til fyrirmyndar þegar lögreglan var við hraðamælingar á Eggertsgötu í Reykjavík í dag. Fylgst var með ökutækjum sem var ekið Eggertsgötu í austurátt, á móts við Eggertsgötu 24. Á einni klukkustund, fyrir hádegi, fóru 36 ökutæki þessa akstursleið og var þeim öllum nema einu, ekið á löglegum hraða en þarna er 30 km hámarkshraði. Hinn brotlegi mældist á 49 km hraða.

Vöktun lögreglunnar á Eggertsgötu er liður í umferðareftirliti hennar á höfuðborgarsvæðinu.