Fara beint í efnið

Ísland.is appið

Með ríkið í vasanum

30. ágúst 2024

Þessi frétt er meira en árs gömul

Fyrirmyndarakstur á Álfhólsvegi í Kópavogi

Allir ökumenn voru til fyrirmyndar þegar lögreglan var við hraðamælingar á Álfhólsvegi í Kópavogi í gær. Fylgst var með ökutækjum sem var ekið Álfhólsvegi í vesturátt, að Skálagerði. Á einni klukkustund, eftir hádegi, fóru 75 ökutæki þessa akstursleið og var þeim öllum ekið á löglegum hraða, en þarna er 30 km hámarkshraði.

Vöktun lögreglunnar á Álfhólsvegi er liður í umferðareftirliti hennar við grunnskóla á höfuðborgarsvæðinu, en þess má geta að sól og þurrt var á meðan hraðamælingunni stóð.