Fara beint í efnið

16. júlí 2026

Fylgdir fólks í ólögmætri dvöl nú stærsti málaflokkur Heimferða- og fylgdadeildar

Tölfræði Heimferða- og fylgdadeildar ríkislögreglustjóra (HOF) fyrir fyrstu sex mánuði ársins 2026 sýnir breytingar á samsetningu þeirra mála sem deildin sinnir.

Fylgd einstaklinga vegna ólögmætrar dvalar hefur aukist að vægi á sama tíma og mál tengd fyrrum umsækjendum um alþjóðlega vernd eru færri en áður. Þótt árið 2026 sé aðeins hálfnað sýna hlutföll málaflokka skýrt að verkefni tengd ólögmætri dvöl vega nú þyngra í starfsemi deildarinnar en þau gerðu á síðasta ári. 
 
Á tímabilinu 1. janúar til 30. júní 2026 lauk HOF afgreiðslu 162 verkbeiðna. Þar af voru 133 mál afgreidd með fylgd en 29 án fylgdar. Flest lokin mál tengdust einstaklingum í ólögmætri dvöl, alls 68 mál eða 42% allra lokinna verkbeiðna. Næst stærsti málaflokkurinn var vegna sakaferils, fangaflutninga og framsals með 46 mál, eða 28% af heildinni, og verndarmál voru 39 talsins, eða 24%. 

Til samanburðar lauk HOF afgreiðslu 389 verkbeiðna á árinu 2025. Þá voru verndarmál stærsti málaflokkurinn með 195 mál, sem samsvaraði helmingi allra lokinna verkbeiðna. Mál vegna ólögmætrar dvalar voru hins vegar 114, eða um 29% heildarinnar. Þessar tölur benda til þess að samsetning verkefna deildarinnar hafi breyst. Á meðan verndarmál voru fyrirferðarmikill hluti starfseminnar árið 2025 er hlutfall verkbeiðna vegna ólögmætrar dvalar hærra á fyrri helmingi ársins 2026.  

Fjöldi verkbeiðna sem bíða afgreiðslu hefur haldist tiltölulega stöðugur. Í lok árs 2025 voru 105 verkbeiðnir óafgreiddar en þann 30. júní 2026 voru þær 117.