Fara beint í efnið

Ísland.is appið

Með ríkið í vasanum

30. janúar 2015

Þessi frétt er meira en árs gömul

Fundur lögreglustjóra

Fyrsti fundur lögreglustjóra eftir breytingu á skipan lögreglumála þann 1. janúar sl. var haldinn í húsakynnum ríkislögreglustjóra í dag þar sem ríkislögreglustjóri og lögreglustjórar landsins hittust.

Í kjölfar breytingar á lögreglulögum nr. 90/1996 var þeim umdæmum landsins þar sem sýslumenn voru jafnframt lögreglustjórar skipt upp í sjálfstæð umdæmi lögreglu og sýslumanna. Nýir lögreglustjórar og sýslumenn voru skipaðir í þeim. Umdæmum lögreglu var jafnframt fækkað úr 15 í 9. Ýmis sameiginleg málefni voru rædd þar á meðal staða mála eftir breytingu á skipan lögreglu. Fundarmenn voru sammála um að breytingarnar hjá lögreglu hefu tekist vel.