Fara beint í efnið

Ísland.is appið

Með ríkið í vasanum

6. júní 2007

Þessi frétt er meira en árs gömul

Fréttatilkynning vegna bruna í porti þjónustumiðstöðvar Vestmannaeyjabæjar

Eins og áður hefur komið fram í fréttum var kveiktur eldur í timbri í porti þjónustumiðstöðvar Vestmannaeyjarbæjar, þann 4. júní s.l. Þótti strax ljóst af ummerkjum að þarna hafi verið um íkveikju að ræða. Hóf lögregla þegar rannsókn á brunanum.

Fljótlega fóru böndin að berast að ungum drengjum, á 14. ári, sem sést höfðu við vettvang um það leyti sem eldurinn kviknaði. Var rætt við drengina og viðurkenndu þeir að hafa kveikt eldinn. Voru þeir að fikta við að kveikja í bensíni en misstu tök á eldinum sem magnaðist.

Var því þarna um að ræða fikt sem fór úr böndunum.

Málið telst upplýst.