Fara beint í efnið

Ísland.is appið

Með ríkið í vasanum

9. september 2015

Þessi frétt er meira en árs gömul

Fréttatilkynning frá lögreglustjóranum á Austurlandi

Við komu ferjunnar Norrönu til Seyðisfjarðar þann 8. þ.m. var lagt hald á verulegt magn fíkniefna. Málið var unnið í samstarfi lögreglustjórans á Austurlandi, embættis Tollstjóra, lögreglunnar á Höfuðborgarsvæðinu og færeyskra tollayfirvalda.

Erlent par á fimmtugsaldri var handtekið í þágu rannsóknar málsins og hafa þau verið úrskurðuð í 14 daga gæsluvarðhald.

Rannsókn málsins er á frumstigi og frekari upplýsingar verða ekki veittar að svo stöddu.

Lögreglustjórinn á Austurlandi

Inger L. Jónsdóttir, lögreglustjóri