Fara beint í efnið

Ísland.is appið

Með ríkið í vasanum

9. ágúst 2015

Þessi frétt er meira en árs gömul

Fréttatilkynning frá lögreglunni á Norðurlandi eystra

Frá því síðdegis í dag hefur staðið yfir umfangsmikil leit lögreglu, björgunarsveita og Landhelgisgæslunnar að lítilli flugvél sem hélt frá Akureyri með tveimur mönnum um klukkan 14 áleiðis til Keflavíkur. Þyrla Landhelgisgæslunnar fann vélina um kl. 20:30 innarlega í Barkárdal við Gíslahnjúk. Annar aðilinn var þá látinn en hinn var fluttur slasaður með þyrlu Landhelgisgæslunnar til Akureyrar og þaðan fluttur með sjúkraflugvél til Reykjavíkur. Ekki eru frekari upplýsingar um ástand þess slasaða. Ekki er unnt að greina frá nöfnum þeirra sem í flugvélinni voru. Rannsókn málsins stendur yfir og því ekki hægt að gefa frekari upplýsingar um málið að svo komnu.