18. september 2026
18. september 2026
Framtíð Ísland.is í brennidepli á Tengjum ríkið
Árleg ráðstefna Stafræns Íslands, Tengjum ríkið, fór fram í sjöunda sinn 17. september á Hilton Nordica. Yfirskriftin í ár var Framtíð Ísland.is og voru viðfangsefni dagsins um næstu skref í stafrænni opinberri þjónustu, hagnýtingu og áskoranir gervigreindar og mikilvægi þverfagslegs samstarfs milli stjórnvalda, opinberra aðila og atvinnulífsins. Ráðstefnan var einkar vel sótt í ár en um 300 gestir, bæði frá hinu opinbera og úr einkageiranum, komu þar saman.

„Betri og einfaldari stafræn þjónusta er ekki bara þægindaauki fyrir almenning, heldur ein skilvirkasta leiðin sem er fær til að reka ríkið af ábyrgð, bæði beinum fjárhagslegum ávinningi fyrir ríkissjóð og þjóðhagslegum ávinningi fyrir samfélagið í heild.” sagði Daði Már Kristófersson fjármála- og efnahagsráðherra sem opnaði ráðstefnuna.
„Við erum í skýjunum með ráðstefnuna í ár. Fyrirlestrarnir sem við fengum frá Bretlandi, Danmörku og auðvitað frá okkar helstu innlendu sérfræðingum veittu okkur virkilegan innblástur. Að loka ráðstefnunni með eldræðu frá Áslaugu Örnu, nýjum framkvæmdastjóra gervigreindarverkefnis Fenris var virkilega hvetjandi og skemmtilegt. Ljóst er að framtíð Ísland.is er sannarlega björt,” segir Birna Íris Jónsdóttir framkvæmdastjóri Stafræns Íslands.
Traust, hugrekki og háleit markmið
Meðal fyrirlesara í ár voru Christine Bellamy aðalframkvæmdastjóri hjá Government Digital Service í Bretlandi sem fjallaði um mikilvægi trausts í opinberri þjónustu, viðhorf kynslóðanna til hennar og hvernig persónusniðnar lausnir og gervigreindareindrekar eru að breyta samskiptum fólks við hið opinbera.
Christian Bason, meðstofnandi TransitionCollective, ræddi um hvernig stjórnendur geta leitt breytingar með því að ögra viðteknum hugmyndum, takast á við óvissu og skapa virði með því að hanna ákvarðanir sem auðvelda umbreytingar á tímum örra samfélagsbreytinga.
Í erindi sínu fjallaði Hjálmar Gíslason stofnandi og framkvæmdastjóri GRID um vinnu starfshóps sem falið hefur verið að endurskoða nálgun íslenskra stjórnvalda á málefni gervigreindar en hlutverk hans er meðal annars að meta stefnu, aðgerðir og áherslur stjórnvalda í málaflokknum.
Stafræn heilsa og möguleikar MCP
Sigurður Þórarinsson forstöðumaður Stafrænnar heilsu sagði í sínu erindi frá hlutverki, tilgangi og verkefnum þjónustu- og þróunarmiðstöðvarinnar Stafrænnar heilsu, sem var sett á laggirnar í upphafi árs og er hluti af heilbrigðisráðuneytinu. Sigurður sagði nýsköpunarnálgun og hugsun mikilvæga fyrir heilbrigðiskerfið svo hægt væri að bæta samfellu í þjónustu og nýta tækni í auknum mæli til að skapa enn betra heilbrigðiskerfi.
Eiríkur Nilsson, meðstofnandi og tæknistjóri Aranja, talaði um erindreka (e. AI Agents) og sýndi hvernig hann hefði tengt sinn erindreka við Mínar síður á Ísland.is þar sem hann hafði aðgang að hans persónulegu upplýsingum. Þannig gat hann spurt gervigreindina hinna ýmsu spurninga og fékk svör um hæl sem byggð voru á raunverulegum upplýsingum um hann frá Mínum síðum.
Lokaorð ráðstefnunnar voru svo frá Áslaugu Örnu Sigurbjörnsdóttur, sem er nýr framkvæmdastjóri gervigreindarverkefna hjá Fenris. Áslaug lagði áherslu á þann árangur sem Ísland hefur náð í stafrænni þjónustu og hversu mikilvægt það er að tileinka okkur nýja tækni hratt en örugglega.