26. nóvember 2019
26. nóvember 2019
Þessi frétt er meira en árs gömul
Framkvæmdir í Skeiðarvogi í Reykjavík
Í dag, þriðjudaginn 26. nóvember, eru fyrirhugaðar malbiksviðgerðir í Skeiðarvogi í Reykjavík. Áætlað er að framkvæmdir hefjist kl. 9 og standi fram yfir hádegi. Vegna þessa þarf að loka fyrir umferð í báðar áttir í Skeiðarvogi á milli Sæbrautar og Langholtsvegar.