Fara beint í efnið

Ísland.is appið

Með ríkið í vasanum

30. október 2012

Þessi frétt er meira en árs gömul

Framkvæmdir í Reykjavík

Frá og með hádegi á morgun, miðvikudaginn 31. október, verður lokað fyrir umferð norður Álfheima, þ.e. á milli Suðurlandsbrautar og Gnoðarvogs. Það er gert vegna vinnu við hjóla- og göngustíga, en áætlað er að verkið taki um eina viku. Í fyrramálið verður hins vegar opnað aftur fyrir umferð suður Álfheima, einnig á milli Suðurlandsbrautar og Gnoðarvogs, en þar hafa líka staðið yfir framkvæmdir af sama toga.