Fara beint í efnið

Ísland.is appið

Með ríkið í vasanum

24. júní 2024

Þessi frétt er meira en árs gömul

Framkvæmdir í Ártúnsbrekku og á Vesturlandsvegi

Í kvöld er stefnt á að fræsa og malbika Ártúnsbrekku og Vesturlandsveg til austurs ásamt rampi upp á Suðurlandsveg. Kaflarnir eru um 600m að lengd og verður einni akrein í Ártúnsbrekku og Vesturlandsvegi lokað og hámarkshraði lækkaður framhjá vinnusvæðinu meðan á þessu stendur. Einnig verður rampi upp á Suðurlandsveg lokað. Áætlaður framkvæmdatími er frá kl. 19 til 6 í fyrramálið.

Ökumenn eru beðnir um að aka varlega, sýna tillitssemi og virða merkingar.