Fara beint í efnið

Ísland.is appið

Með ríkið í vasanum

24. febrúar 2020

Þessi frétt er meira en árs gömul

Framkvæmdir á Reykjanesbraut

Verktaki hefur lokað norður akrein Reykjanesbrautar á Krýsuvíkurgatnamótum vegna framkvæmda. Umferð á norðurakrein í vesturátt er beint um frárein, í gegnum norðurhringtorg á Krýsuvíkurvegi og upp aðrein að Reykjanesbraut, eins og sést á meðfylgjandi mynd.

Þessi lokun hefur engin áhrif á umferð í austurátt.Akreinin verður opnuð aftur kl 17 í dag.