5. júlí 2019
5. júlí 2019
Þessi frétt er meira en árs gömul
Framkvæmdir á Reykjanesbraut
Í dag er stefnt að því að malbika á Reykjanesbraut (austur) á milli Kaplakrika og Vífilsstaðavegar. Áætlað er að framkvæmdirnar standi yfir frá kl. 9 – 17. Malbikuð verður ein akrein í einu. Vegfarendur eru beðnir um að virða merkingar og hraðatakmarkanir og sýna aðgát við vinnusvæðin, sem eru þröng og menn og tæki eru við vinnu mjög nálægt akstursbrautum.