Fara beint í efnið

Ísland.is appið

Með ríkið í vasanum

19. júní 2023

Þessi frétt er meira en árs gömul

Framkvæmdir á höfuðborgarsvæðinu

Í kvöld og nótt er stefnt á að malbika Hringbraut í Reykjavík, á milli Sæmundargötu og Njarðargötu. Kaflanum verður lokað í suðausturátt og hjáleiðir verða um Sæmundargötu, Sturlugötu og Njarðargötu. Vinnan mun standa yfir frá kl. 19 – 5 í nótt.

Í kvöld og nótt er líka stefnt á að fræsa Breiðholtsbraut í Reykjavík, á milli Stekkjarbakka og Jaðarsels. Veginum verður lokað í suðurátt og hjáleið verður um Miðskóga og Seljabraut. Vinnan mun standa yfir frá kl. 19 – 4 í nótt.

Vegfarendur eru beðnir um að virða merkingar og hraðatakmarkanir og sýna aðgát við vinnusvæðin, sem eru þröng og menn og tæki eru við vinnu mjög nálægt akstursbrautum.