Fara beint í efnið

Ísland.is appið

Með ríkið í vasanum

2. nóvember 2022

Þessi frétt er meira en árs gömul

Framkvæmdir á höfuðborgarsvæðinu

Ýmsar framkvæmdir eru fyrirhugaðar á höfuðborgarsvæðinu í dag, miðvikudag, og má þar nefna malbiksviðgerðir í Rofabæ í Árbæ, milli Bæjarbrautar og Fylkisvegar, á Borgavegi í Grafaravogi, milli Strandvegar og Sóleyjarima, og í Hamravík í Grafarvogi. Framkvæmdir í Hamravík hefjast eftir hádegi, en fyrir hádegi á hinum stöðunum.

Vekjum sömuleiðis athygli á því að í nótt, aðfaranótt 3. nóvember, verður unnið við kantlýsingu og skiltaljós í Hvalfjarðargöngum. Vinnan þar hefst á miðnætti í kvöld og eru vegfarendur beðnir um að sýna aðgát.