9. febrúar 2023
9. febrúar 2023
Framfærsluviðmið hækka
Fyrir umsækjendur um dvalarleyfi og ríkisborgararétt
![](https://images.ctfassets.net/8k0h54kbe6bj/2I6kkWREXQCDFWXFjjx2xz/e8b93963082689e67a0c9b2aa09f6b82/D18.png?w=50&fm=webp&q=80)
![Dalvegur 18](https://images.ctfassets.net/8k0h54kbe6bj/2I6kkWREXQCDFWXFjjx2xz/e8b93963082689e67a0c9b2aa09f6b82/D18.png?w=774&fm=webp&q=80)
Eitt grunnskilyrða fyrir útgáfu dvalarleyfis og veitingu ríkisborgararéttar á Íslandi er að umsækjendur geti sýnt fram á að hafa næg fjárráð til að geta séð fyrir sér sjálfir.
Frá og með 15. febrúar 2023 hækkar viðmið fyrir einstaklinga, 18 ára og eldri, úr 212.694 kr. í 217.799 kr. á mánuði. Viðmið fyrir hjón hækkar úr 340.320 kr. í 348.476 kr. á mánuði. Upphæðir miðast við tekjur fyrir skatt.
Viðmiðin samsvara grunnfjárhæð fjárhagsaðstoðar Reykjavíkurborgar.