4. apríl 2022
4. apríl 2022
Framboðsfrestur og vanhæfi kjörstjórnarmanns
Frestur til að skila framboðum vegna kosninga til sveitarstjórnar sem fram fara 14. maí 2022 er til kl. 12 á hádegi föstudaginn 8. apríl.
Kjörstjórnarmaður og fulltrúi í landskjörstjórn skal víkja úr kjörstjórn ef einstaklingur er í kjöri sem er eða hefur verið:
Maki kjörstjórnarmanns, sambúðarmaki, fyrrverandi sambúðarmaki eða skyldur eða mægður honum í beinan legg eða skyldur eða mægður honum að öðrum lið til hliðar eða tengdur honum með sama hætti vegna ættleiðingar.
Til skýringar er hér mynd sem sýnir dæmi um vanhæfi. Ef einhver þeirra sem taldir eru upp á myndinni eru í framboði, telst kjörstjórnarmaður vanhæfur samkvæmt kosningalögum.