Fara beint í efnið

12. febrúar 2024

Fræðslufundur 26. febrúar um ellilífeyri

TR býður upp á fræðslufund mánudaginn 26. febrúar kl. 16.00 – 18.00 í Hlíðasmára 11 um ellilífeyrismál. Á fundinum verður farið yfir allt sem snýr að umsóknum um ellilífeyri frá TR, greiðslufyrirkomulag og fleira.

Garðyrkjukona TR

Unnur Kristín Sigurgeirsdóttir, verkefnastjóri ellilífeyris hjá TR kynnir umsóknarferlið og umgjörð ellilífeyrisgreiðslna hjá TR. Á fundinum setjum við fram góðan vegvísi fyrir þau sem eru að huga að starfslokum. Þetta þarf ekki að vera flókið og því kjörið að koma og kynna sér málin.

Við hvetjum öll sem telja sig þurfa upplýsingar um ellilífeyriskerfi almannatrygginga að mæta. Við biðjum þau sem ætla að mæta að skrá sig hér.

Á fundinum gefst góður tími til að spyrja spurninga og fá góðar upplýsingar um ellilífeyri almannatrygginga.

Í mars er fyrirhugað að halda samskonar fræðslu í streymi og verður það auglýst síðar.