Fara beint í efnið

23. júní 2023

Frábærir ökukennarar

95% ökukennara hafa nú hafið skráningar og geta því staðfest með stafrænum hætti ökutíma, akstursmat og að nemandi sé tilbúinn í æfingaakstur.

Ökunám

Notkun á stafrænu ökunámsferli hefur farið vel af stað. Markmiðið með verkefninu er að einfalda ferlið og bæta þjónustu svo um munar. Ökukennarar eru mikilvægur hluti notenda. Þeir koma til móts við þarfir nemenda sinna og hafa boðið stafræna ökunámsferlið velkomið. Þannig hafa nú 95% ökukennara hafið skráningar og geta því staðfest með stafrænum hætti ökutíma, akstursmat og að nemandi sé tilbúinn í æfingaakstur.

Hér má sjá yfirlit yfir fjölda ökukennara og hlutfall þeirra sem hafa skráð sig til þátttöku í stafrænu ökunámsferli:

Heildarfjöldi ökukennara (skv. ökuskíreinaskrá)

277

Virkir ökukennarar í B-námi frá janúar 2023

228

Hlutfall ökukennara í B-námi sem nota stafrænt ökunámsferli

95%