Fara beint í efnið

Ísland.is appið

Með ríkið í vasanum

6. september 2019

Þessi frétt er meira en árs gömul

Fólk hvatt til að huga að niðurföllum

Lögreglan vekur athygli á veðurspánni fyrir næsta sólarhring, en á höfuðborgarsvæðinu er spáð suðaustan 10-18 m/s á morgun og rigningu, talsverðri um tíma, en hægari S-læg átt annað kvöld og úrkomuminna. Hiti 7 til 13 stig. Gefin hefur verið út gul viðvörun fyrir höfuðborgarsvæðið og Faxaflóa og er fólk hvatt til að sýna aðgát og einnig að huga að niðurföllum til að forðast vatnstjón.