16. febrúar 2007
16. febrúar 2007
Þessi frétt er meira en árs gömul
Flutningur starfsmanna milli ríkislögreglustjóraembættisins og lögreglustjórans á höfuðborgarsvæðinu
Jónmundur Kjartansson yfirlögregluþjónn við embætti ríkislögreglustjóra flyst til starfa hjá lögreglunni á höfuðborgarsvæðinu hinn 1. mars nk. Hlutverk hans verður að stýra innri endurskoðun embættisins.
Ásgeir Karlsson, aðstoðaryfirlögregluþjónn við embætti lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu flyst til embættis ríkislögreglustjóra hinn 1. mars nk. Ásgeir mun fara með daglega stjórn greiningardeildar ríkislögreglustjóra.