Fara beint í efnið

Ísland.is appið

Með ríkið í vasanum

2. júlí 2009

Þessi frétt er meira en árs gömul

Flugslys Vopnafirði

Flugvél brotlenti við veiðihúsið við Selá í Vopnafirði upp úr kl. 16:00 í dag. Tveir menn voru í flugvélinni, annar maðurinn lést við brotlendinguna en hinn var fluttur með sjúkraflugi til Reykjavíkur. Rannsóknardeild lögreglunnar á Eskifirði og flugslysanefnd fara með rannsókn málsins. Frekari upplýsingar verða ekki gefnar að svo stöddu.