Fara beint í efnið

15. desember 2023

Flugplan.is

Flugplan.is er ný gátt á vegum Flugmálafélags Íslands fyrir flugáætlanagerð

Flugmálafélagið

Auknar kröfur hafa verið innleiddar á undanförnum árum um gæði og einnig stafræna meðhöndlum flugmálagagna. Flugmálafélagið hefur ekki látið sitt eftir liggja í þeim efnum og tók nýlega í notkun nýja vefgátt fyrir rafrænar flugáætlanir. Í gegnum gáttina er hægt að senda flugáætlanir beint inní CRONOS flugmálaupplýsingakerfi Isavia ANS.

Ánægjulegt er að sjá gott samstarf milli Flugmálafélagsins og Isavia ANS skila sér í góðu kerfi fyrir notendur loftrýmisins.

Hlekkur á nýja síðu Flugmálafélagsins sem er sérstaklega tileinkuð innlögn flugáætlana.