Fara beint í efnið

Ísland.is appið

Með ríkið í vasanum

6. janúar 2009

Þessi frétt er meira en árs gömul

Flugeldaslys og skemmdarverk

Tvö flugeldaslys voru tilkynnt til lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu í gær en í báðum tilvikum voru aðilar fluttir á slysadeild. Í Grafarvogi voru tveir unglingar að taka í sundur skotelda þegar illa fór en annan þeirra þurfti að færa undir læknishendur. Í Kópavogi var þriðji unglingurinn við samskonar iðju og þar fór allt á sama veg. Sá brenndist á höndum og í andliti. Mikið ónæði var af flugeldum í gær og bárust lögreglunni margar kvartanir vegna þessa. Nokkuð var líka um skemmdarverk en púðurkerlingum og öðru slíku var ýmist troðið inn um bréfalúgur eða settar í póstkassa og ruslatunnur.