Fara beint í efnið

Ísland.is appið

Með ríkið í vasanum

6. janúar 2014

Þessi frétt er meira en árs gömul

Flugeldaslys

Maður sem slasaðist alvarlega í flugeldaslysi á Gamlaárskvöld á Selfossi er nú kominn heim af sjúkrahúsi. Hann mun hafa misst þrjá fingur annarrar handar alveg og hluta þess fjórða. Þá er hann nokkuð skorinn á hinni höndinni en önnur meiðsl eru minni.

Maðurinn kveðst hafa keypt flugeldinn, sem slysinu olli, hjá einkareknum sölustað í Hafnarfirði og að um hafi verið að ræða s.k. kúlurakettu. Hann segist hafa kveikt í rakettunni með venjubundnum hætti, hún hafi farið upp en kúlan sjálf losnað frá og rúllað á jörðinni. Hann hafi þá tekið kúluna upp en hún sprungið um leið með fyrrgreindum afleiðingum.

Áfram verður unnið að rannsókn málsins, m.a. með skoðun á sambærilegri vöru.