Fara beint í efnið

Ísland.is appið

Með ríkið í vasanum

12. apríl 2007

Þessi frétt er meira en árs gömul

Flugdreki ógnaði flugöryggi

Það er fátítt að lögreglumenn hafi afskipti af fólki með flugdreka en þó gerðist það í þessari viku. Um var að ræða karlmann sem var með flugdreka í Öskjuhlíðinni. Flugdrekinn var svo hátt á lofti að hann truflaði aðflug flugvéla að Reykjavíkurflugvelli. Maðurinn tók afskiptum lögreglu vel og tók niður flugdrekann. Hann sagðist jafnframt ekki hafa gert sér grein fyrir hættunni sem af þessu skapaðist.