24. nóvember 2006
24. nóvember 2006
Þessi frétt er meira en árs gömul
Flugdólgur ber við minnisleysi
Hálfþrítugur karlmaður, sem var handtekinn eftir ólæti um borð í flugvél í gærkvöld, bar við minnisleysi þegar hann var spurður um háttalag sitt. Maðurinn, sem var færður til skýrslutöku hjá lögreglunni í Reykjavík í dag, var að angra farþega í áðurnefndu flugi og þurfti flugstjóri vélarinnar að taka aukahring af þeim sökum áður en hann gat lent á áfangastað. Vélin var í aðflugi og með hjólin niðri þegar hinn svokallaði flugdólgur lét sem verst. Lendingin tókst samt giftusamlega en um borð voru allmargir farþegar.
Flugdólgurinn lét áfram ófriðlega eftir að vélin var lent og þurfti að beita hann valdi til að koma honum á lögreglustöð og í fangaklefa. Maðurinn, sem hefur alloft áður komist í kast við lögin, var ölvaður.
.