Fara beint í efnið

24. mars 2022

Flóttamenn frá Úkraínu fá sjúkratryggingu á Íslandi

Í dag fá fyrstu 20 flóttamennirnir frá Úkraínu íslenska sjúkratryggingu og þar með fullan rétt til greiðsluþátttöku hins opinbera í nauðsynlegri heilbrigðisþjónustu.

Sjúkra lógó transparent

María Heimisdóttir, forstjóri Sjúkratrygginga segir gögn um þennan hóp hafa borist stofnuninni eftir hádegi í gær. Lagt hafi verið kapp á að klára alla skráningu samdægurs og því er tryggingin orðin virk í dag. Sjúkratryggingar munu áfram setja útgáfu trygginga fyrir flóttamenn í forgang þannig að þær verði virkar innan sólarhrings frá því nauðsynleg gögn berast.

Sjúkratryggingar gera jafnframt ráð fyrir að taka þátt í móttöku flóttamanna í miðstöðinni í Domus Medica, með því að vera þar með fulltrúa sem geta gefið upplýsingar um afgreiðslu hjálpartækja og lyfjakorta, greiðsluþátttöku í heilbrigðisþjónustu o.fl.

Frá því að ljóst var að Ísland tæki á móti flóttamönnum frá Úkraínu hafa Sjúkratryggingar verið í samstarfi við heilbrigðistryggingar í öðrum Evrópulöndum enda flókið verkefni að tryggja milljónum manns þjónustu sem flúið hafa Úkraínu á síðustu vikum. Það samstarf mun halda áfram en flestir flóttamannanna hyggjast reyna að snúa aftur til síns heima, um leið og stríðsátökunum lýkur.

Tekið skal fram að flóttamenn, eins og aðrir, hafa ávallt aðgang að bráðaþjónustu, óháð því hvort sjúkratrygging er frágengin.

María Heimisdóttir forstjóri Sjúkratrygginga: „Móttaka þessa flóttafólks er stórt verkefni fyrir samfélagið í heild, ekki síst heilbrigðiskerfið. Við höfum lagt kapp á að tryggja skjóta afgreiðslu þannig að þessi viðkvæmi hópur geti haft greitt aðgengi að heilbrigðisþjónustu, enda má reikna með að margir innan hópsins séu í brýnni þörf fyrir ýmis konar aðstoð. Fjölmörg ungabörn eru í hópnum og þau ganga inn í öflugt ungbarnaeftirlit sem við höfum hér á landi. Undirbúningurinn hefur gengið mjög vel og við höfum átt frábært samstarf við Rauða krossinn, Útlendingastofnun, Heilsugæsluna, Þjóðskrá, íslenska sjálfboðaliða og alla aðra sem að þessu koma.“