Fara beint í efnið

Ísland.is appið

Með ríkið í vasanum

9. mars 2010

Þessi frétt er meira en árs gömul

Fjórum bílum stolið

Fjórum bílum var stolið á höfuðborgarsvæðinu um helgina. Einn þeirra kom fljótlega í leitirnar og var piltur um tvítugt handtekinn vegna málsins. Lögreglan ítrekar að bílar séu ekki skildir eftir ólæstir og í gangi. Sé það gert er verið að bjóða hættunni heim. Þegar ökutækið er yfirgefið skal taka bíllykilinn með og alls ekki skilja hann eftir í kveikjulásnum eins og mörg dæmi eru um. Tíðar tilkynningar um nytjastuld undanfarið gefa til kynna að ökumenn þurfa að gera miklu betur í þessum efnum.