Fara beint í efnið

Ísland.is appið

Með ríkið í vasanum

5. september 2011

Þessi frétt er meira en árs gömul

Fjórtán teknir fyrir ölvunarakstur

Fjórtán ökumenn voru teknir fyrir ölvunarakstur á höfuðborgarsvæðinu um helgina. Ellefu þeirra voru stöðvaðir í Reykjavík og einn í Kópavogi, Garðabæ og Hafnarfirði. Einn var tekinn á föstudagskvöld, níu á laugardag og fjórir á sunnudag. Þetta voru tólf karlar á aldrinum 20-44 ára og tvær konur, 20 og 21 árs. Tveir þessara ökumanna höfðu þegar verið sviptir ökuleyfi og einn hefur aldrei öðlast ökuréttindi.