11. janúar 2011
11. janúar 2011
Þessi frétt er meira en árs gömul
Fjórtán teknir fyrir ölvunarakstur
Fjórtán ökumenn voru teknir fyrir ölvunarakstur á höfuðborgarsvæðinu um helgina. Ellefu voru stöðvaðir í Reykjavík, tveir í Hafnarfirði og einn í Garðabæ. Tveir voru teknir á föstudagskvöld, sjö á laugardag og fimm á sunnudag. Þetta voru tólf karlar á aldrinum 20-50 ára og tvær konur, 19 og 39 ára. Tveir þessara ökumanna höfðu þegar verið sviptir ökuleyfi og tveir til viðbótar hafa aldrei öðlast ökuréttindi.