Fara beint í efnið

Ísland.is appið

Með ríkið í vasanum

12. október 2009

Þessi frétt er meira en árs gömul

Fjórtán teknir fyrir ölvunarakstur

Fjórtán ökumenn voru teknir fyrir ölvunarakstur í umdæmi lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu um helgina. Einn var stöðvaður á föstudagskvöld, níu á laugardag og fjórir á sunnudag. Tólf voru teknir í Reykjavík og einn í Kópavogi og Hafnarfirði. Þetta voru ellefu karlar á aldrinum 20-59 ára og þrjár konur en þær eru allar á þrítugsaldri. Fimm þessara ökumanna höfðu þegar verið sviptir ökuleyfi og einn hefur aldrei öðlast ökuréttindi. Til viðbótar stöðvaði lögreglan för átta annarra ökumanna sem voru sömuleiðis próflausir.