Fara beint í efnið

Ísland.is appið

Með ríkið í vasanum

13. desember 2012

Þessi frétt er meira en árs gömul

Fjórir ungir menn handteknir vegna bílþjófnaðar í Þorlákshöfn

Síðdegis í gær handtóku lögreglumenn á vakt þrjá pilta vegna gruns um þjófnað á bifreið í Þorlákshöfn aðfaranótt þriðjudags. Bifreiðin, sem er af Toyota Corolla gerð, fannst síðar um daginn stórskemmd í grjótnámu við Þorláksthöfn. Af ummerkjum í námunni var ljóst að bifreiðinni hafði verið ekið fram og aftur yfir og á grjót og hún síðan nánast tætt í sundur. Lögrelgumenn á dagvakt fór í að kanna málið sem leiddi til þess að síðdegis í gær handtóku þeir þrjá 17 ára pilta. Einn þeirra var í síðustu viku handtekinn vegna skemmdarverks við Aratungu. Einn þeirra viðurkenndi að hafa í félagi við hina stolið bifreiðinni og skemmt hana. Við leit hjá piltunum fannst bassabox sem stolið var úr bifreið á Selfossi fyrir stuttu og GPS tæki sem stolið var frá öðrum stað. Fjórði pilturinn hefur verið handtekinn vegna þýfis sem fór um hendur hans til eins þremenninganna sem handteknir voru í gær.

Málið er upplýst og mun fara að rannsókn lokinni til ákæruvalds til frekari ákvörðunar. Barnaverndaryfirvöldum var tilkynnt um atvikið að venju.