2. febrúar 2015
2. febrúar 2015
Þessi frétt er meira en árs gömul
Fjórir ökumenn handteknir
Lögreglan á Suðurnesjum handtók tvo ökumenn um helgina, sem báðir voru staðnir að fíkniefnaakstri. Annar reyndist hafa neytt kannabisefna og hinn einnig, auk amfetamíns. Þá voru tveir ökumenn til viðbótar handteknir fyrir ölvunarakstur. Annar þeirra var að leggja af stað til Reykjavíkur þegar lögregla stöðvaði hann.