Fara beint í efnið

Ísland.is appið

Með ríkið í vasanum

23. júní 2009

Þessi frétt er meira en árs gömul

Fjórir óku undir áhrifum fíkniefna

Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu stöðvaði för fjögurra ökumanna í umdæminu um helgina en hinir sömu voru allir undir áhrifum fíkniefna. Þetta voru allt karlar en þeir voru teknir víðsvegar í borginni. Mennirnir eru á þrítugs-, fertugs- og sextugsaldri en tveir þeirra höfðu þegar verið sviptur ökuleyfi. Þess má geta að einn fjórmenninganna ók á bíl sem var búinn nagladekkjum og verður því sektaður fyrir það að auki.