Fara beint í efnið

Ísland.is appið

Með ríkið í vasanum

27. október 2011

Þessi frétt er meira en árs gömul

Fjórir karlmenn í haldi lögreglunnar á Selfossi

Í nótt er leið voru þrír erlendir ríkisborgarar handteknir í orlofshúsi í Árnessýslu grunaðir um ólöglega vörzlu og meðferð mikils magns meints kókaíns. Í framhaldi var fjórði erlendi ríkisborgarinn handtekinn á höfuðborgarsvæðinu. Lögreglan á Selfossi naut aðstoðar sérsveitar Ríkislögreglustjóra. Málið er í rannsókn og af rannsóknarhagsmunum verða frekari upplýsingar ekki veittar fyrr en rannsókn hefur miðað frekar áfram.