Fara beint í efnið

Ísland.is appið

Með ríkið í vasanum

25. mars 2008

Þessi frétt er meira en árs gömul

Fjórir brutu gegn lögreglusamþykkt Reykjavíkurborgar

Í Hamraborg í Kópavogi höfðu lögreglumenn afskipti af pilti um tvítugt sem kastaði af sér þvagi á almannafæri. Sá viðurkenndi brotið og á nú sekt yfir höfði sér. Þrátt fyrir játninguna var pilturinn allt annað en sáttur og furðaði sig á þessu vinnubrögðum. Hann sagði það eðlilegt að taka á þessháttar brotum í miðborg Reykjavíkur en ekki í Kópavogi. Þessu voru lögreglumenn á vettvangi ósammála og vísuðu í lögreglusamþykkt Kópavogsbæjar.