Fara beint í efnið

2. febrúar 2022

Fjórði skammtur fyrir einstaklinga sem fengu snemmörvunarskammt COVID-19 bóluefnis

Einstaklingar í þessum hópi geta sóst eftir fjórða skammti sem er þá hin eiginlega örvunarbólusetning þegar a.m.k. 3 mánuðir eru liðnir frá þriðja skammti.

Sóttvarnalæknir - logo

Einstaklingar með ákveðna undirliggjandi sjúkdóma eða sem fengið hafa ákveðnar ónæmisbælandi meðferðir á undanförnum 1-2 árum hafa fengið örvunarskammt fyrr en aðrir þar sem tveir skammtar eru ekki taldir vekja fullnægjandi svar, jafnvel til skamms tíma. Víða erlendis hefur verið miðað við 1 mánuð eftir skammt #2 en hér á landi 3 mánuði, aðallega vegna þess að þessi hópur var mikið til bólusettur svo snemma vorið 2021 að 3-5 mánuðir voru þegar liðnir þegar ákvörðun var tekin um þriðja skammtinn.

Einstaklingar í þessum hópi geta sóst eftir fjórða skammti sem er þá hin eiginlega örvunarbólusetning þegar a.m.k. 3 mánuðir eru liðnir frá þriðja skammti. Athugið að í mörgum tilvikum er það meðhöndlandi læknir sem þarf að meta hvort líkamsástand eða meðferðarstaða nú gefur tilefni til að nota fjórða skammt. Því er við hæfi að ræða við meðhöndlandi lækni ef óljóst er hvort einstaklingur ætti að sækjast eftir þessum fjórða skammti (sjá tengil hér að ofan) en þá getur læknabréf til heilsugæslu eða í höndum einstaklingsins til að sýna á bólusetningarstað liðkað fyrir.

Sóttvarnalæknir