Fara beint í efnið

30. júní 2022

Fjórði einstaklingurinn greinist með apabólu á Íslandi

Í gær greindist fjórði einstaklingurinn með apabólu á Íslandi.

Apabóla

Í gær greindist fjórði einstaklingurinn með apabólu á Íslandi. Um er að ræða karlmann á miðjum aldri og svo virðist sem um sé að ræða innanlandssmit frá áður óþekktum smitbera. Smitrakning stendur nú yfir. Viðkomandi er við góða heilsu og dvelur í einangrun heima.

Enn hafa bóluefni eða veirulyf ekki borist til landsins en síðustu fréttir frá Evrópusambandinu herma, að von sé á fyrstu sendingu innan fárra vikna.

Nú hafa um 3.000 manns greinst með apabólu í Evrópu á þessu ári og eru alvarleg veikindi fátíð.

Sóttvarnalæknir