18. október 2024
18. október 2024
Þessi frétt er meira en árs gömul
Fjölmennur fundur Öruggara Austurlands
Samráðsvettvangur „Öruggara Austurland“ hélt sinn þriðja fund þann 14. október og sá fjölmennasti hingað til. Verkefnið Öruggara Austurland var komið á laggirnar fyrir rúmu ári síðan, með það að markmiði að sameina fjölbreytta hóp aðila í baráttunni gegn ofbeldi og öðrum afbrotum á svæðinu til að stuðla að velferð íbúa. Meðal þátttakenda eru öll sveitarfélögin á Austurlandi, Austurbrú, Menntaskólinn á Egilsstöðum, Verkmenntaskóli Austurlands, Austurlandsprófastsdæmi, lögreglan og sýslumaður, auk Heilbrigðisstofnunar Austurlands og Ungmenna- og íþróttasambands Austurlands.
Sigríður Björk Guðjónsdóttir ríkislögreglustjóri setti fundinn. Fyrri hluti fundarins snerist um farsæld barna þar sem kynnt voru farsældarlögin, stigskipting þeirra og tölfræði. Fjallað var um innleiðingu lausnateyma í skólum, samstarf um stuðning við uppeldi og nám, og áskoranir sem tengjast innleiðingu þjónustu í þágu farsældar barna. Seinni hluti fundarins var helgaður þróun verklags vegna heimilisofbeldismála og opnaði Guðjón Hauksson, forstjóri Heilbrigðisstofnunar Austurlands þann hluta. Fyrirlesarar frá Landspítalanum fjölluðu um nýtt verklag í heilbrigðisþjónustu við móttöku þolenda heimilisofbeldis og hvernig bæta mætti samstarf gegn ofbeldi innan fjölskyldna á Austurlandi. Þverfaglegt teymi helstu lykilaðila á Austurlandi ræddi síðan hvernig betur megi vinna saman gegn ofbeldi innan fjölskyldna á Austurlandi.
Mikill áhugi var á þessum málum, og þátttakendur voru sammála um mikilvægi þeirra í þágu öruggara samfélags á Austurlandi. Fundinum lauk með umræðum um næstu skref í að efla úrræði og samstarf, með lokaorðum frá Margréti Maríu Sigurðardóttur lögreglustjóra á Austurlandi.
Nánar um samfélagslöggæslu og svæðisbundið samráð um afbrotavarnir.
Nánari upplýsingar um Öruggara Austurland veitir:
Margrét María Sigurðardóttir, lögreglustjórinn á Austurlandi, mms01@logreglan.is