Fara beint í efnið

Ísland.is appið

Með ríkið í vasanum

25. október 2023

Þessi frétt er meira en árs gömul

Fjögurra vikna gæsluvarðhald

Kona um fertugt var í dag í Héraðsdómi Reykjavíkur úrskurðuð í fjögurra vikna áframhaldandi gæsluvarðhald, eða til 21. nóvember, að kröfu Lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu í þágu rannsóknar hennar á andláti karlmanns á sextugsaldri í íbúð fjölbýlishúss í austurborginni í síðasta mánuði.

Ekki er hægt að veita frekari upplýsingar að svo stöddu.