Fara beint í efnið

Ísland.is appið

Með ríkið í vasanum

15. maí 2008

Þessi frétt er meira en árs gömul

Fjögur fíkniefnamál

Fjögur fíkniefnamál komu til kasta lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu í gær. Í þeim voru höfð afskipti af sex körlum á þrítugsaldri sem allir voru með fíkniefni í fórum sínum, ýmist amfetamín eða marijúana. Í tveimur málanna var um húsleit að ræða en í annarri þeirra fundust rúmlega 20 grömm af amfetamíni og nokkuð af marijúana.

Fyrrnefndar aðgerðir eru liður lögreglu í að hamla gegn sölu og dreifingu fíkniefna.