Fara beint í efnið

Ísland.is appið

Með ríkið í vasanum

14. september 2006

Þessi frétt er meira en árs gömul

Fjögur fíkniefnamál

Fjögur fíkniefnamál komu til kasta lögreglunnar í Reykjavík í gær og nótt. Málin eru óskyld en samtals komu fimm aðilar við sögu en ætluð fíkniefni fundust á þeim öllum. Fólkið er á aldrinum 18-24 ára. Þá var maður á þrítugsaldri færður á lögreglustöð en hann var í annarlegu ástandi og hafði haft í hótunum við annan mann.

Lögreglan var einnig kölluð til í nokkrum minniháttar þjófnaðarmálum en talsvert ber á búðarhnupli þessa dagana. Þá er vitað um tvo bensínþjófnaði í gær. Að síðustu er vert að geta þess að engin innbrot var tilkynnt til lögreglunnar á síðasta sólarhring og það eru mjög góð tíðindi.