Fara beint í efnið

18. september 2026

Fjölskyldan er mikilvæg heilsu barna

Starfsfólk HSN kynnti sér nýverið tengslamiðaða fjölskyldumeðferð sem miðar að því að styrkja tengsl, bæta samskipti og styðja fjölskylduna sem heild.

Þórdís Jónsdóttir iðjuþjálfi, Theódóra Gunnarsdóttir sálfræðingur, Dr. Guy Diamond, María Bjarnadóttir teymisstjóri GTB og Róshildur Arna Ólafsdóttir sálfræðingur

Þegar barn eða aðrir meðlimir í fjölskyldu glíma við vanlíðan getur stuðningur og þátttaka fjölskyldunnar sem heild skipt miklu máli. Fulltrúar frá Geðheilsuteymi og Sálfræðiþjónustu barna hjá HSN sóttu nýverið vinnustofu um tengslamiðaða fjölskyldumeðferð, þar sem áhersla er lögð á að styrkja tengsl barna og foreldra og styðja fjölskylduna í sameiningu.

Vinnustofan fór fram á Barna- og unglingageðdeild Landspítala 3. september, í tengslum við árlega ráðstefnu BUGL. Aðalfyrirlesari og gestur var dr. Guy Diamond prófessor við læknadeild Pennsylvaníuháskóla í Bandaríkjunum, sem er einn af stofnendum ABFT (e. Attachment-Based Family Therapy) sem er tengslamiðuð fjölskyldumeðferð.

Á vinnustofunni kynntist starfsfólk HSN aðferðum sem geta hjálpað fjölskyldum að bæta samskipti, efla öryggi og styrkja tengsl þegar barn eða ungmenni og fjölskylda glímir við vanda. Meðferðin byggir meðal annars á þekkingu um tengsl, tilfinningastjórn og áhrif erfiðrar reynslu.

Þátttakan er liður í því að efla fjölskyldumiðaða þjónustu hjá HSN, en Geðheilsuteymi barna er með til skoðunar að innleiða ABFT fyrir börn og fjölskyldur sem leita til teymisins. Rannsóknir hafa sýnt að þátttaka fjölskyldunnar og góður stuðningur við hana getur bætt árangur meðferðar. Börn eru háð umhverfi sínu og aðstæðum. Líðan barna verður heldur ekki skoðuð án þess að horfa jafnframt til tengsla þeirra og þess umhverfis sem þau búa við.

Fulltrúar HSN sóttu einnig ráðstefnu BUGL, sem bar yfirskriftina Töfrar tengslanna. Þar var fjallað um mikilvægi öruggra og sterkra tengsla fyrir líðan, velferð og þroska barna og ungmenna. Hluti starfsfólks HSN fylgdist með ráðstefnunni í streymi.

Hrefna Sæunn Einarsdóttir, barna- og unglingageðlæknir Geðheilsuteymi barna (2. línu), Theódóra Gunnarsdóttir sálfræðingur Sálfræðiþjónustu barna (1. línu), Þórdís Jónsdóttir iðjuþjálfi Geðheilsuteymi barna (2. línu), María Bjarnadóttir teymisstjóri Geðheilsuteymi barna (2. línu) og Róshildur Arna Ólafsdóttir sálfræðingur Geðheilsuteymi barna (2. línu)